Í viku 48 keypti Kvika 4.240.515 eigin hluti að kaupverði 43.849.330 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
26.11.2019 | 09:53:44 | 1.411.667 | 10,35 | 14.610.753 |
26.11.2019 | 10:49:39 | 2.000.000 | 10,33 | 20.660.000 |
27.11.2019 | 09:47:57 | 828.848 | 10,35 | 8.578.577 |
Samtals | 4.240.515 | 43.849.330 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. október sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 14. mars 2019.
Kvika átti 45.759.485 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 50.000.000 eigin hluti. Allir eigin hlutir voru keyptir samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum. Nemur heildarkaupverð þeirra 520.321.697 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er því lokið.
Endurkaupaáætlunin var í gildi á tímabilinu 21. október 2019 til og með 14. febrúar 2020, nema hámarks fjölda keyptra hluta yrði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.