Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hafa síðan á síðasta stjórnarfundi borist fimm tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 9.499.999 kr., um nýtingu réttindanna.

Þær tilkynningar sem borist hafa eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld í september 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins. Framangreint felur í sér nýtingu að áskriftarréttindum að samtals 9.499.999 nýjum hlutum á genginu 6,25. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 59.374.994.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 131/1997 um rafræna eignaskráningu verðbréfa.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 9.499.999 og mun eftir hækkun standa í kr. 1.986.399.099 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 547.083.350 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september s.l.

Einn þeirra aðila sem nýtingin varðar er fjárhagslega tengdur stjórnanda félagsins í skilningi 3. mgr. 127. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Er þar af leiðandi um að ræða viðskipti sem félaginu ber að birta opinberlega skv. 1. mgr. sömu gr. Þann 26. nóvember sl. var tilkynnt um viðskiptin.