Reginn hf.: Útboð á nýjum flokki skuldabréfa 5. desember 2019



Reginn hf. hefur ákveðið að hefja útgáfu á nýjum flokki skuldabréfa, REGINN280130. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga að rúmum 10 árum liðnum en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Meðallíftími flokksins (e. duration) á útgáfudegi er rúm 7 ár. Flokkurinn ber fasta 2,5% vexti en greiðslur vaxta og afborgana verða á 3 mánaða fresti, fyrst 28. apríl 2020. Óskað verður eftir því að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Fimmtudaginn 5. desember nk. verður lokað útboð þar sem fjárfestum stendur til boða að kaupa skuldabréf í þessum nýja flokki. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Reginn hf. áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er mánudagurinn 16. desember 2019. Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynna það fyrir fjárfestum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. d, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks verða birt á vefsíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur. Tilkynningar sem Reginn hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.


Nánari upplýsingar veita:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262
Jóhann Sigurjónsson – Fjármálastjóri - johann@reginn.is - S: 512 8900 / 859 9800
Matei Manolescu – Fossar markaðir - matei.manolescu@fossarmarkets.com – S: 522 4008