Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 27. nóvember tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 9.499.999 í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 1.986.399.099 að nafnvirði.

Óskað verður eftir því að nýju hlutirnir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.