Reginn: Niðurstaða skuldabréfaútboðs



Lokuðu útboði Regins á skuldabréfum þann 5. desember 2019 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í nýjum verðtryggðum flokki, REGINN280130, sem óskað verður eftir að tekinn verði til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.520 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,75%.

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð mánudaginn 16. desember næstkomandi og óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Fossar markaðir höfuð umsjón með útboðinu fyrir hönd Regins.


Nánari upplýsingar veita:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262

Jóhann Sigurjónsson – Fjármálastjóri - johann@reginn.is - S: 512 8900 / 859 9800

Matei Manolescu – Fossar markaðir - matei.manolescu@fossarmarkets.com – S: 522 4008