Kvika banki hf. gefur út skuldabréf til fimm ára


Kvika banki hf. hefur í dag lokið sölu á fimm ára almennu skuldabréfi með jöfnum mánaðarlegum afborgunum og vaxtagreiðslum í nýjum flokki KVB 19 01. Skuldabréfið ber breytilega vexti, REIBOR 1 mánuður, að viðbættu 1,50% álagi og er selt á pari. Útgáfan í dag nemur 1.520 m.kr. og er heildarútgáfuheimild 5.000 m.kr. Skuldabréfið verður tekið til viðskipta á Nasdaq Iceland í janúar.

Þetta er önnur útgáfa bankans á almennum skuldabréfum í íslenskum krónum sem tekin verður til viðskipta á Nasdaq Iceland en áður hefur bankinn gefið út 2.160m.kr. í flokkinum KVB 17 02.