Í 51. viku 2019 keypti Eimskip 344.740 eigin hluti fyrir kr. 64.775.343 samkvæmt neðangreindu:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
| 16.12.2019 | 09:36:11 | 68.000 | 189 | 12.852.000 |
| 17.12.2019 | 09:33:19 | 69.185 | 187,5 | 12.972.188 |
| 18.12.2019 | 09:43:55 | 69.185 | 188 | 13.006.780 |
| 19.12.2019 | 09:44:10 | 69.185 | 187,5 | 12.972.188 |
| 20.12.2019 | 14:50:06 | 69.185 | 187,5 | 12.972.188 |
| Samtals | 344.740 | 64.775.343 | ||
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í kauphöll þann 1. desember 2019.
Eimskip átti 3.638.474 eigin hluti fyrir viðskiptin, sem nam 1,95% af heildarhlutafé félagsins, og á að þeim loknum 3.983.214 hluti sem nemur 2,13% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip keypti í viku 51 samtals 344.740 hluti í félaginu. Kaupverð hinna keyptu hluta nam samtals kr. 64.775.343 sem samsvarar 12,96% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir skv. áætluninni. Eimskip hefur keypt samtals 945.134 hluti í félaginu að fjárhæð kr. 174.934.073 að markaðsvirði í endurkaupaáætluninni.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 3.125.000 hluta og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en kr. 500.000.000. Heimildin gildir til 24. janúar 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is