Í viku 2 keyptu Reginn hf. 3.572.328 eigin hluti að kaupverði 82.163.544 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
8.1.2020 | 10:15:36 | 1.786.164 | 22,85 | 40.813.847 |
9.1.2020 | 10:30:47 | 1.786.164 | 23,15 | 41.349.697 |
Samtals | 3.572.328 | 82.163.544 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2020.
Reginn átti 21.929.825 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 25.502.153 eigin hluti eða sem nemur 1,40% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 3.572.328 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,20% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 82.163.544 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 4. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262