Tilnefningarnefnd Regins hf. auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Regins fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður miðvikudaginn 11. mars 2020.
Nefndin starfar í umboði hluthafa og er hlutverk hennar að vera ráðgefandi við val á stjórnarmönnum í stjórn félagsins. Við mat á stjórnarmönnum leggur nefndin mat á hæfni hvers og eins ásamt því að huga að samsetningu stjórnarinnar með það að leiðarljósi að stjórnin í heild sinni búi yfir nægilegri hæfni, þekkingu og reynslu.
Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til nefndarinnar er til mánudagsins 27. janúar 2020 og skal senda þær á tilnefningarnefnd@reginn.is. Tilnefningar nefndarinnar um stjórn félagsins verða birtar samhliða birtingu fundarboðs aðalfundar, sem samkvæmt samþykktum félagsins er boðað til með skemmst þriggja vikna fyrirvara.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.
Sérstök athygli er vakin á því að samkvæmt samþykktum félagsins ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst sjö sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 4. mars 2020. Vakin er athygli á því að tilnefningarnefnd getur breytt tilnefningum sínum þangað til fimm dagar eru til fundar.
Tilnefningarnefnd Regins hf.