Niðurstöður viðbótarútgáfu RIKB 28 1115


Í tengslum við útboð sem haldið var 10. janúar stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 28 1115 fyrir 186,2 m.kr. Uppgjör er 15. janúar 2020. Heildarstærð flokksins er nú 67.449.801.519 kr. að nafnvirði.