Í viku 3 keyptu Reginn hf. 7.644.656 eigin hluti að kaupverði 183.296.743 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
13.1.2020 | 13:50:47 | 1.000.000 | 24,10 | 24.100.000 |
13.1.2020 | 14:11:49 | 786.164 | 24,10 | 18.946.552 |
14.1.2020 | 09:46:47 | 500.000 | 23,65 | 11.825.000 |
15.1.2020 | 10:48:26 | 1.786.164 | 23,80 | 42.510.703 |
16.1.2020 | 10:47:23 | 1.786.164 | 24,10 | 43.046.552 |
17.1.2020 | 09:34:35 | 893.082 | 24,00 | 21.433.968 |
17.1.2020 | 09:35:31 | 893.082 | 24,00 | 21.433.968 |
Samtals | 7.644.656 | 183.296.743 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2020.
Reginn átti 25.502.153 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 33.146.809 eigin hluti eða sem nemur 1,82% af útgefnum hlutum í félaginu.
Reginn hefur keypt samtals 11.216.984 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 265.460.287 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 4. mars 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262