Reginn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið



Í viku 5 keyptu Reginn hf. 1.014.230 eigin hluti að kaupverði 23.479.425 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
27.01.201909:47:361.014.23023,1523.479.425
  Samtals 1.014.230   23.479.425   


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. janúar 2020.

Reginn átti 42.077.629 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 43.091.859 eigin hluti eða sem nemur 2,36% af útgefnum hlutum í félaginu.

Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að  hámarki 21.929.825 hlutum eða sem nemur 1,20% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 500.000.000 kr. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Reginn hefur keypt samtals 21.162.034 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,16% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.986 kr. Reginn á nú við lok endurkaupaáætlunar samtals 2,36% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.826.243.956.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262