Heimavellir hf.
Fréttatilkynning 12. febrúar 2020
Ársreikningur Heimavalla hf. fyrir árið 2019
Helstu atriði:
- EBITDA ávöxtun hækkar milli ára og er 4,4% á árinu 2019 (2018: 4,2%)
- EBIT framlegð stendur í stað milli ára er 62,1% á árinu 2019 (2018: 62,1%)
- Heimavellir gáfu út skráð verðtryggð skuldabréf fyrir 2.420 m.kr. á árinu á 3,53% meðalvöxtum. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta.
- Hagræðing í eignasafni félagsins hélt áfram á árinu 2019 og voru 369 íbúðir seldar fyrir 11.400 m.kr. Söluandvirði íbúðanna var 3,7% yfir bókfærðu virði þeirra. Á sama tíma keypti félagið 114 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
- Rekstrartekjur námu 3.372 m.kr. (2018: 3.685 m.kr.) og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu var 2.051 m.kr. (2018: 2.249 m.kr.).
- Í árslok var bókfært virði fjárfestingareigna 45.299 m.kr. og lækkar um 15% á milli ára (2018: 53.142 m.kr). Matsbreyting ársins nam 1.695 m.kr og er að mestu tilkomin vegna lægri vaxtakostnaðar við mat á virði eigna.
- Vaxtaberandi skuldir lækka milli ára og námu 28.995 m.kr. (2018: 34.701 m.kr.).
- Handbært fé frá rekstri var 610 m.kr. og hækkar um 213 m.kr milli ára. Handbært fé í árslok var 1.740 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall í árslok var 37,2%
- Fjöldi hluthafa í árslok voru 452 (2018: 584)
Starfsemi og horfur
Á árinu 2019 var endurskipulagning eignasafnsins í öndvegi. Íbúðum fækkaði úr 1.892 í 1.637 í þeim tilgangi að styrkja rekstur félagsins, bæta efnahagsreikning þess og draga úr endurfjármögnunarþörf. Til framtíðar verða kjarnasvæði félagins fyrst og fremst höfuðborgarsvæðið og Reykjanesbær. Önnur svæði verða um 10% af eignasafni félagsins.
Á árinu 2020 eru áætlaðar leigutekjur 3.000 – 3.100 m.kr og EBIT framlegð er áætluð 62,5% - 63,5%. Fjöldi íbúða í árslok 2020 er áætlaður um 1.500. Félagið stefnir á að ná 5,0% EBITDA ávöxtun á 4. ársfjórðungi 2020.
Kynning á uppgjöri ársins
Arnar Gauti Reynisson framkvæmdastjóri Heimavalla mun kynna uppgjörið fimmtudaginn 13. febrúar kl. 8:30 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík í sal G á 2. hæð.
Nánari upplýsingar veitir:
Arnar Gauti Reynisson framkvæmdastjóri,
gauti@heimavellir.is s. 860 5300
Viðhengi