Rekstur félagsins gekk vel á árinu 2019 og nam EBITDA ársins 5.562 m.kr. samkvæmt stjórnendauppgjöri. Eru niðurstöðurnar í takt við uppfærðar væntingar félagsins við birtingu uppgjörs fyrsta ársfjórðungs.
Helstu niðurstöður eru:
- Rekstrartekjur námu 8.656 m.kr.
- Leigutekjur námu 7.393 m.kr. og jukust um 9,2% milli ára
- Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað fjárfestingareigna og afskriftir nam 5.562 m.kr.
- Matsbreyting fjárfestingareigna nam 2.170 m.kr.
- Handbært fé frá rekstri nam 3.104 m.kr.
- Bókfært virði fasteigna nam 97.671 m.kr.
- Vaxtaberandi skuldir námu 59.780 m.kr.
- Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,65%
- Eiginfjárhlutfall nam 31,7% í lok árs
- Virðisútleiguhlutfall nam 94,9% í lok árs
Helstu tölur úr fjárhagsáætlun 2020 miðað við 2,5% meðalverðbólgu eru:
- Tekjur verða 8.939 m.kr.
- Gjöld verða 2.815 m.kr.
- Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður verður 435 m.kr.
- EBITDA verður 5.689 m.kr.
Í meðfylgjandi kynningu má finna ítarlegri upplýsingar um stjórnendauppgjör og forsendur fjárhagsáætlunar.
Nánari upplýsingar veita:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820 8980
Viðhengi