Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Reitir hafa endurnýjað samning sinn við Arion banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samningurinn kveður á um að Arion skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi kauphallarinnar áður en markaðurinn er opnaður. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Arion tekið eða verði það fellt niður af hálfu Arion skal Arion setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu Arion.

Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki í 200.000 hluti að nafnvirði á gengi sem Arion ákveður. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða skal vera 1,5%. Eigi Arion viðskipti með bréf félagsins samkvæmt samningnum fyrir 75.000.000 kr. að markaðsvirði eða meira innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags.

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 4. mars 2020. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.