Aðalfundur TM 12. mars 2020 - Endanlegar tillögur og ályktanir


Samkvæmt samþykktum TM hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hluthafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.  Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests þar um sem var 2. mars sl.

Eru endanlegar tillögur og ályktanir vegna aðalfundar TM 2020 því óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins 20. febrúar sl.

Endanlegar tillögur og ályktanir fyrir aðalfund TM 2020 í heild sinni er að finna í meðfylgjandi viðhengi.

Viðhengi


Attachments

Dagskrá og tillögur_aðalfundur 2020