Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi 10. mars 2020

Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn þann 10. mars 2020 kl. 15.00 á Hótel Reykjavík Natura, þingsal 2.

Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri dagskrá og tillögum sem lagðar verða fyrir fundinn, en þær má sjá hér.

Núverandi stjórnarmenn félagsins gefa allir kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Framboðsfrestur er nú runninn út samkvæmt samþykktum félagsins og hafa frekari framboð ekki borist.

Stjórnarmenn félagsins eru:

Kristinn Albertsson
Martha Eiríksdóttir
Sigríður Sigurðardóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Þar sem stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum er ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir til áframhaldandi setu í stjórn félagsins á aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í greinargerð tilnefningarnefndar sem sjá má hér