Source: Eik fasteignafélag hf.

Eik fasteignafélag hf.: Breytingar á viðskiptavakt vegna óviðráðanlegra atvika

Viðskiptavakar félagsins, Arion banki og Kvika banki, hafa tilkynnt félaginu að þeir telji sér heimilt að víkja frá ákvæðum um fjárhæðir og verðbil í samningum um viðskiptavakt, vegna óviðráðanlegra atvika.

Nánari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200