Hagar hf.: Breyting á skilmálum viðskiptavaka


Högum hf. hefur borist tilkynning frá Íslandsbanka hf., sem er annar aðila sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins, sbr. tilkynningu þann 13. febrúar 2020. Íslandsbanki hefur tilkynnt að hann muni beita heimild í samningnum er gerir bankanum heimilt að víkja frá ákvæðum samningsins um fjárhæðir og verðbil vegna óvenjulegra aðstæðna á markaði, og muni gera slíkt á meðan ástandið varir.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og samstæðu, í síma 530-5500.