Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár


Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 26. mars s.l. var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um kr. 50.000.000 að nafnvirði, eða sem nemur 50.000.000 hlutum, úr kr. 2.014.759.097 í kr. 1.964.759.097 að nafnvirði, með niðurfellingu eigin hluta félagsins að framangreindri fjárhæð. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun á árinu 2019.

Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 1.964.759.097 að nafnvirði.