Reginn hf.: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2020



Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2020, eftir lokun markaða miðvikudaginn 13. maí 2020.

Af því tilefni býður Reginn hf. til rafræns kynningarfundar fimmtudaginn 14. maí nk. kl. 8:30.

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið. Hafi aðilar spurningar varðandi uppgjörið eða kynninguna er hægt að senda fyrirspurn á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og meðan á kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni.

Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/9108755/player


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262