Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 10. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 20.000.000 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist á árinu 2019 með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlun stjórnar sem aðalfundur félagsins 2019 veitti heimild fyrir, og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 669.856.201 kr. en var fyrir lækkunina 689.856.201 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.