Síminn hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 12. mars 2020 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 875.000.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Félagið á í dag 500.147.413 eigin hluti en á aðalfundi félagsins þann 12. mars 2020 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 500.000.000 hluti til jöfnunar á eigin hlutum. Lækkunin er í vinnslu hjá ríkisskattstjóra og hlutafélagaskrá og verður framkvæmd um leið og samþykki liggur fyrir. Eftir lækkunina mun félagið eiga 147.413 hluti og því geta endurkaupin að hámarki numið 874.852.587 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 10% af útgefnu hlutafé félagsins.

Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2021, en þó aldrei lengur en til 12. mars 2021 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar hefur stjórn Símans hf. tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin nú munu nema 500 milljónum króna að kaupverði.

Fossar markaðir hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 5.091.124 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í apríl 2020. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast mánudaginn 11. maí nk.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is