Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt árshlutareikning fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2020. Helstu lykiltölur reikningsins eru:
Lykiltölur rekstrar | ||
3M 2020 | 3M 2019 | |
Tekjur | 2.882 | 2.877 |
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | -814 | -789 |
Stjórnunarkostnaður | -163 | -172 |
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 1.905 | 1.916 |
Matsbreyting fjárfestingareigna | -2.135 | 706 |
Rekstrartap / rekstrarhagnaður | -230 | 2.622 |
Hrein fjármagnsgjöld | -1.040 | -1.283 |
Tap / hagnaður | -1.032 | 997 |
Tap / hagnaður á hlut | -1,5 kr. | 1,4 kr. |
NOI hlutfall* | 62,3% | 63,3% |
Stjórnunarkostnaðarhlutfall* | 5,3% | 5,7% |
Lykiltölur efnahags | ||
31.3.2020 | 31.12.2019 | |
Fjárfestingareignir | 146.017 | 149.106 |
Handbært og bundið fé | 3.628 | 1.224 |
Heildareignir | 151.533 | 151.640 |
Eigið fé | 44.756 | 47.644 |
Vaxtaberandi skuldir | 87.658 | 85.297 |
Eiginfjárhlutfall | 29,5% | 31,4% |
Skuldsetningarhlutfall | 62,4% | 59,4% |
Lykiltölur um fasteignasafn | ||
3M 2020 | 3M 2019 | |
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið)* | 94,3% | 95,1% |
Fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram * Reiknað sem hlutfall af heildartekjum |
Guðjón Auðunsson, forstjóri:
„Frá því fyrst fór að bera á áhrifum Covid-19 veirusýkingarinnar hafa stjórn og stjórnendur Reita gripið til ýmissa aðgerða til þess að styrkja félagið og auðvelda því að glíma við afleiðingar faraldursins. Í fyrri hluta mars var afkomuspá ársins tekin úr gildi enda mikil óvissa til staðar um hversu víðtæk áhrif yrðu á leigutaka félagsins. Einnig var ákveðið að fresta arðgreiðsludegi og endurkaupaáætlun félagsins var lokið.
Félagið hefur mætt þeim leigutökum sem orðið hafa fyrir verulegum áhrifum af stöðunni með skilningi á aðstæðum. Leigugreiðslum fyrir apríl og maímánuð hefur verið frestað að hluta og mun félagið leita niðurstöðu þeirra mála í góðu samstarfi við viðkomandi aðila þegar aðstæður leyfa.
Staða Reita til þess að fást við þessar óvenjulegu aðstæður er sterk og lánaskilyrði félagsins vel innan þeirra marka sem félaginu eru sett. Sala eigna og sala skuldabréfa á fyrstu mánuðum ársins styrktu sjóðstöðu félagsins umtalsvert. Þá hefur félagið frestað áður samþykktri arðgreiðslu aðalfundar um óákveðinn tíma en ákvörðun um meðhöndlun arðsins þarf að liggja fyrir eigi síðar en 10. september nk. Þá hefur félagið gert ráðstafanir til að tryggja enn frekar aðgengi að lausu fé m.a. með heimild til frestunar afborgana af bankalánum og aðgangi að nýjum lánalínum, ef á þarf að halda.
Stjórnendur hafa metið virði eignasafns félagsins við lok fyrsta ársfjórðungs 2020. Þrátt fyrir töluverða óvissu um áhrif faraldursins er það mat stjórnenda nú að afleiðinga hans munu gæta út árið 2022 og að mestu áhrifin komi fram á þessu ári, en fari minnkandi eftir það. Af þessum sökum lækkar virði eigna félagsins sem nemur 2.135 millj. kr. í árshlutauppgjörinu. Félagið hefur mörg undangengin ár beitt varfærnum forsendum við mat á framtíðarleigutekjum og virði eigna sem af þeim er leitt og sér nú að því gættu ekki efni til frekari varúðarfærslna við virðismatið.
Samhliða fækkun Covid tilfella í samfélaginu eykst aðsókn í Kringluna og leigutakar okkar víðsvegar sjá starfsemi færast í hefðbundnara form. Reitir horfa til lengri framtíðar og vinna áfram að skipulagi þróunarreita sem koma til með að auka fjölbreytni í eignasafni Reita til lengri tíma litið.“
Fjárhagsdagatal
Eftirfarandi er uppfærð áætlun Reita fasteignafélags hf. um birtingu uppgjöra og aðalfundi félagsins.
Afkoma 2. ársfjórðungs 2020 | 24. ágúst 2020 |
Afkoma 3. ársfjórðungs 2020 | 16. nóvember 2020 |
Afkoma 4. ársfjórðungs og ársuppgjör 2020 | 15. febrúar 2021 |
Aðalfundur 2021 | 11. mars 2021 |
Frekari upplýsingar og kynningarfundur
Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á rafrænan kynningarfund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 12. maí kl. 8:30. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn, eftir skráningu fá þátttakendur staðfestingarpóst með nánari upplýsingum. Hægt verður að bera upp spurningar á fundinum með skriflegum hætti.
Skráning á kynningarfundinn:
https://origo.zoom.us/webinar/register/WN_C3sjznPOQDiTWuNFUowEiQ
Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar. Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.
Um Reiti
Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem er að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir í eigu félagsins eru um 140 talsins, um 460 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Reykjavík Nordica og Icelandair Hotel Reykjavík Natura og skrifstofubyggingar á Höfðabakka 9 og við Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Sjóvár, Origo og Advania. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Flugleiðahótel, ríki og sveitarfélög.
Viðhengi