Kvika banki hf. birtir afkomu fyrir fyrsta ársfjórðung fimmtudaginn 14. maí 2020


Kvika banki hf. mun birta afkomu vegna fyrstu þriggja mánaða ársins 2020 fimmtududaginn 14. maí, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrirfjárfesta verður haldinn í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð, Katrínartúni 2, Reykjavík, kl. 16:30 sama dag.


Vakin er athygli á því að fyrirmælum yfirvalda vegna samkomubanns verður fylgt í hvívetna á fundinum, m.a. hvað varðar hreinlæti, fjöldatakmörkun og fjarlægð milli fundarmanna. Fjárfestakynning sem farið verður yfir á fundinum verður aðgengileg fyrir fundinn.