Festi hf.: Breytingar á framkvæmdastjórn


Gréta María Grétarsdóttir hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Krónunnar en hún mun starfa áfram þangað til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðin.

„Tími minn hjá Krónunni hefur verið frábær, fyrst sem fjármálastjóri og svo sem framkvæmdastjóri. Það hafa verið forréttindi að fá að vera hluti af eins öflugu liði og Krónuliðið er. Það er gríðarlega erfið ákvörðun að hætta hjá Krónunni en á sama tíma hefur verið lærdómsríkt og krefjandi að leiða félagið í gegnum eigendaskipti og að búa til leiðandi afl á matvörumarkaði. Í mínu starfi hef ég lagt ríka áherslu á að sýna samfélagslega ábyrgð í verki og hafa áherslur okkar í þeim efnum meðal annars gert það að verkum að við höfum markvisst aukið hlutdeild okkar á markaði. Ég er mjög stolt af þeim árangri sem við höfum náð og kveð með söknuði. Ég vil nota tækifærið og þakka fólkinu mínu fyrir samstarfið sem og okkar frábæru viðskiptavinum,“ segir Gréta María Grétarsdóttir.

„Ég vil þakka Grétu fyrir frábært starf fyrir Krónuna og þann mikla árangur sem félagið hefur náð undir hennar stjórn,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri – netfang eggert@festi.is