Eik fasteignafélag hf.: Breytingar á viðskiptavakt


Arion banki, viðskiptavaki félagsins, hefur tilkynnt félaginu að bankinn telji ekki lengur fyrir hendi þörf á að beita heimild í samningi um viðskiptavakt til frestunar á skyldum vegna óviðráðanlegra atvika og því gildi að nýju ákvæði samningsins um verðbil og fjárhæðir.

Félagið tilkynnti 12. mars 2020 um að Arion banki teldi sér heimilt að víkja frá skilyrðum í viðskiptavakasamningi vegna óviðráðanlegra atvika. 

Nánari upplýsingar veitir:
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 820-8980