Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 28. maí sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 3.656.666 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 1.968.415.763 að nafnvirði.

Nýju hlutirnir hafa verið gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað hefur verið eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.