Síminn hf.: Breyting á skilmálum viðskiptavaka


Símanum hf. hefur borist tilkynning frá Arion banka hf., sem er annar aðili sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins, um að ekki sé lengur fyrir hendi þörf á að víkja frá skilyrðum samningsins í óviðráðanlegum aðstæðum eins og áður var kynnt þann 12. mars sl. Ákvæði samningsins um verðbil og fjárhæðir gildir því nú að nýju.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson, forstjóri, orri@siminn.is.