Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn 10. júní 2020 kl. 16:00 í salnum Háteig, á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar Eikar fasteignafélags hf. rann út 3. júní kl. 16:00. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:
- Arna Harðardóttir
- Bjarni Kristján Þorvarðarson
- Eyjólfur Árni Rafnsson
- Guðrún Bergsteinsdóttir
- Hersir Sigurgeirsson
Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi. Tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn fylgir einnig með. Einn frambjóðenda dró framboð sitt til baka eftir að nefndin skilaði niðurstöðum sínum.
Viðhengi