Kvika banki hf.: Tilkynning vegna samninga um viðskiptavakt


Vísað er til tilkynningar Kviku vegna samninga um viðskiptavakt sem birtist þann 12. mars 2020 þar sem fram kom m.a. að Íslandsbanki hf., sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf Kviku, myndi beita heimild í samningi um að víkja frá skilyrðum samnings í óviðráðanlegum aðstæðum er varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.

Samkvæmt Íslandsbanka er ekki lengur fyrir hendi þörf á að beita umræddri heimild. Ákvæði samningsins um verðbil og fjárhæðir gildi því nú að nýju.