Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Afturköllun breytinga á skilmálum viðskiptavaka

Reitum hefur borist tilkynning frá Kviku banka sem sinnir viðskiptavakt með hlutabréf félagsins, um að ekki sé lengur nauðsynlegt að beita heimild í samningi aðila til að víkja frá skilyrðum hans hvað varðar verðbil og fjárhæðir í óviðráðanlegum aðstæðum, sjá fyrri tilkynningu þar um hér.
Gilda því ákvæði samnings Reita og Kviku banka um verðbil og fjárhæðir nú að nýju.
Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.