Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 9. júní nk.


Aðalfundur Haga hf. verður haldinn þriðjudaginn 9. júní 2020. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 09:00.


Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 4. júní sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins, í stafrófsröð:


1. Albert Jónsson (f. 1962), sjálfstætt starfandi viðskiptafræðingur

2. Davíð Harðarson (f. 1976), fjármálastjóri Nordic Visitor

3. Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), forstjóri Slippsins á Akureyri

4. Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður hjá LMB Mandat slf.

5. Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969), ráðgjafi hjá Valcon consulting

6. Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962), eigandi Kría konsulting ehf.

7. Rósalind Guðmundsdóttir (f. 1976), framkvæmdastjóri Vélsmiðju Guðmundar ehf.


Nánari upplýsingar um frambjóðendur má sjá í meðfylgjandi skjali. Tillaga tilnefninganefndar um stjórnarmenn er einnig meðfylgjandi. 


Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórn skipuð fimm mönnum. Er það mat stjórnar Haga hf. að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu, stjórnendum og stórum hluthöfum þess og að öll framboð séu gild, sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum.


Stjórn Haga hf.

Viðhengi



Attachments

Framboð til stjórnar Haga 09.06.20 Skýrsla tilnefninganefndar Haga hf - aðalfundur 2020_signed