Hagar hf.: Tilkynning vegna framkvæmdastjórnar Haga


Þann 30. apríl sl. var tilkynnt um breytingu á framkvæmdastjórn Haga, m.a. að Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefði óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu. Í dag hefur náðst samkomulag við Guðmund og mun hann áfram starfa sem framkvæmdastjóri Bónus.

Í ársreikningi félagsins sem birtur var 18. maí sl. var tilkynnt að fjárhagsleg áhrif starfslokanna kæmu fram á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins 2020/21. Í ljósi fyrrgreinds samkomulags mun ekki koma til gjaldfærslu nú, líkt og áður hafði verið áætlað.

Miðað við ofangreint gerir nú mat stjórnenda ráð fyrir því að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir samstæðunnar (EBITDA) á fyrsta ársfjórðungi, þ.e. tímabilið 1. mars til 31. maí 2020, verði 1.100 til 1.250 millj. króna.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Harðarsson, stjórnarformaður Haga, í tölvupósti: davidh@nordicvisitor.com.