Kvika banki hf.: Útboð á víxlum 23. júní 2020


Kvika banki hf. heldur útboð á víxlum bankans þriðjudaginn 23. júní 2020.

Í boði eru víxlar í 6 mánaða flokknum KVB 20 1221 að nafnvirði 2.000 m. kr. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæstu samþykktu flötu vextir) ræður söluverðinu. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m. kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í kauphöll Nasdaq Iceland. Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 þriðjudaginn 23. júní. Uppgjörsdagur er 25. júní 2020.

Hægt er að hafa samband við markaðsviðskipti Kviku í síma 540-3220 eða með tölvupósti á vixlar@kvika.is til að fá nánari upplýsingar.