Þann 25. júní sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 2.633.333 að nafnvirði í þeim tilgangi að mæta nýtingu áskriftarréttinda.
Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 1.971.049.096 að nafnvirði.
Nýju hlutirnir munu verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.