Eik fasteignafélag hf.: Skráning hlutafjárlækkunar


Lækkun hlutafjár Eikar fasteignafélags hf. um 41.317.000 kr. að nafnverði hefur verið skráð í fyrirtækjaskrá. Lækkunin var samþykkt á aðalfundi félagsins 10. júní 2020 og tók aðeins til eigin hluta.

Hlutafé félagsins er nú 3.423.863.435 kr. að nafnverði en var fyrir lækkun 3.465.180.435 kr. að nafnverði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.