Festi birtir uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2020 eftir lokun markaða fimmtudaginn 6. ágúst næstkomandi.
Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 7. ágúst 2020 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.
Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/fjarfestatengsl