Kvika banki hf.: Leiðrétting - Árshlutareikningur - 6 mán


Í íslenskri útgáfu tilkynningar sem birtist frá bankanum kl. 11:11 í dag var tímasetning kynningarfundar vegna afkomu fyrstu 6 mánuða ársins 2020 misrituð. Hið rétta er að fundurinn verður haldinn klukkan 11:45 næstkomandi föstudag, 21. ágúst.

Kvika banki hf.: Árshlutareikningur - 6 mán

Kvika banki hf. mun birta afkomu vegna fyrstu sex mánaða ársins 2020 fimmtududaginn 20. ágúst, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrirfjárfesta verður haldinn í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð, Katrínartúni 2, Reykjavík, föstudaginn 21. ágúst kl. 11:45. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Vakin er athygli á því að fyrirmælum yfirvalda um sóttvarnir verður fylgt í hvívetna á fundinum, m.a. hvað varðar hreinlæti, fjöldatakmörkun og fjarlægð milli fundarmanna. Fjárfestakynning sem farið verður yfir á fundinum verður aðgengileg fyrir fundinn.