Staða OR sterk til að vinna gegn samdrætti


Hálfsársuppgjör samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR; Reykjavík Energy) ber með sér stöðugleika í afkomu og að fyrirtækið sé því vel í stakk búið að auka við fjárfestingar til að vinna gegn efnahagssamdrætti í landinu. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 8,1 milljarði króna á fyrri hluta ársins en var 8,2 milljarðar í fyrra og framlegð rekstursins (EBITDA) jókst milli ára, úr 13,9 milljörðum 2019 í 14,4 milljarða króna nú. Árshlutareikningur samstæðu OR fyrir fyrstu sex mánuði ársins var samþykktur í stjórn fyrirtækisins í dag. Reikningurinn er uppgjör allrar samstæðunnar en innan hennar eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar, Gagnaveita Reykjavíkur og Carbfix.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir trausta fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur og festu í rekstrinum sýna að fyrirtækin í samstæðunni séu vel búin til að auka umsvifin til að vinna á móti efnahagssamdrættinum vegna kórónuveirufaraldursins. Lausafjárstaða OR hafi aldrei verið sterkari. 

Dregur úr áhrifum reiknaðra stærða

Samhliða þessum mikla stöðugleika í rekstrarafkomu hefur dregið úr áhrifum reiknaðra stærða á heildarafkomuna eftir því sem liðið hefur á árið. Reikningsskilin eru í samræmi við staðalinn IAS 34 um árshlutareikninga og því fylgir að breytingar á væntum tekjum af langtímasamningum eru teknar með í rekstrarreikninginn. Lækkun á álverði frá ársbyrjun, sem hefur áhrif á tekjur af raforkusölu, er þá reiknuð mörg ár fram í tímann en færð til bókar í hverju uppgjöri. Áhrif þessa á heildarafkomu OR á fyrstu þremur mánuðum þessa árs voru mjög mikil, eða liðlega 10 milljarðar króna. Þetta gekk til baka um 1,9 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Þessar færslur hafa ekki áhrif á rekstrarhagnað, sjóðstöðu eða getu fyrirtækisins til fjárfestinga en hafa áhrif á reiknaða heildarniðurstöðu árshlutauppgjörsins. Hún er nú neikvæð um 0,9 milljarða króna en samsvarandi tala var jákvæð um 3,3 milljarða króna eftir fyrri hluta ársins 2019.

Bjarni Bjarnason, forstjóri

Núna þegar kreppir að í samfélaginu vegna veirunnar, sjáum við hvað það skiptir miklu að hafa náð að snúa fjárhag Orkuveitu Reykjavíkur til hins betra á sínum tíma. Frá því samdráttar vegna kórónuveirunnar fór að gæta seint síðasta vetur, hafa fyrirtækin í samstæðunni haft afl til að axla samfélagslega ábyrgð. Það hefur sýnt sig meðal annars í auknum fjárfestingum og fjölgun sumarstarfsfólks.

Rekstraruppgjör Orkuveitu Reykjavíkur eftir fyrri helming þessa sérkennilega árs sýnir að við höfum styrk til að halda áfram að leggja okkar af mörkum.

Eins og stundum áður sjáum við í uppgjöri OR verulega sveiflu vegna reiknaðra stærða sem hafa hvorki áhrif á niðurstöðu af rekstrinum né sjóðstreymið. Hún er neikvæð í þetta skiptið en hún hefur ekki áhrif á getu Orkuveitu Reykjavíkur til að vera á meðal þeirra sem draga vagninn á leið okkar út úr efnahagssamdrættinum í samfélaginu. Innbyggðar varnir í fjárhagsskipan samstæðu OR gera það að verkum að á móti þessari færslu í rekstrarreikningi eflist efnahagsreikningurinn og eigið fé hækkar.

Heimsfaraldurinn hefur vitaskuld haft talsverð áhrif á starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna, rétt eins og heimsbyggðina alla. Við vorum ágætlega undir hann búin með viðbragðsáætlanir og sú ábyrgð sem starfsfólk hefur sýnt í samskiptum við viðskiptavini og sín á milli hefur komið í veg fyrir að faraldurinn hafi bitnað á þjónustu OR. Við höfum þurft að breyta mörgu í starfseminni. Margar þeirra breytinga hafa verið til batnaðar og við komum til með halda þeim eftir að við höfum bægt ógninni af kórónuveirunni frá.

Rekstraryfirlit og helstu kennitölur

 20162017201820192020
Fjárhæðir eru í mkr. á verðlagi hvers árs1.1.-30.6.1.1.-30.6.1.1.-30.6.1.1.-30.6.1.1.-30.6.
      
Rekstrartekjur 20.95521.61223.16723.50224.272
Rekstrarkostnaður (8.215)(8.063)(8.626)(9.571)(9.879)
   þ.a. orkukaup og flutningur (3.133)(2.898)(3.112)(2.870)(2.824)
      
EBITDA 12.74113.54914.54113.93114.393
Afskriftir (5.303)(4.706)(4.616)(5.728)(6.284)
Rekstrarhagnaður EBIT 7.4388.8429.9268.2038.109
      
Afkoma tímabilsins 5.0297.3114.2003.349(900)
      
Sjóðstreymi     
Innleystar vaxtatekjur 5712499207174
Greidd vaxtagjöld (1.890)(2.013)(2.267)(2.726)(2.655)
Handbært fé frá rekstri 11.77412.65210.98813.33012.520
Veltufé frá rekstri 10.61711.70712.04810.02711.164
      
Lausafé30.6.201630.6.201730.6.201830.6.201930.6.2020
Bundnar innstæður og markaðsverðbréf 1.4414.1276.2597.11213.091
Handbært fé 7.04914.15110.91714.91215.097
Lausafé samtals 8.49018.27817.17622.02428.187
      
Kennitölur30.6.201630.6.201730.6.201830.6.201930.6.2020
Eiginfjárhlutfall 38,3%42,6%47,3%47,4%47,2%
Veltufjárhlutfall 0,91,11,11,11,0
Nettó skuldir / handbært fé frá rekstri 6,04,75,75,05,6
Vaxtaþekja (handb. fé frá rekstri - vaxtagjöld)/vaxtagjöld 5,65,74,64,64,3
ROCE 5,1%6,4%6,6%4,8%4,2%

Lykiltölur fjármála

Fleiri lykiltölur fjármála OR-samstæðunnar eru birtar á vef Orkuveitu Reykjavíkur ásamt fjárhagslegum markmiðum sem unnið er að.

Slóðin er https://www.or.is/fjarmal/lykiltolur-fjarmala/


Nánari upplýsingar:
Ingvar Stefánsson
Framkvæmdastjóri fjármála OR

617 6301

Viðhengi



Attachments

OR árshlutareikningur samstæðu F2 2020