Kvika banki hf.: Samningur um viðskiptavakt


Kvika banki hf. („Kvika“) hefur undirritað nýjan samning við Arion banka hf. ("Arion") um áframhaldandi viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Kviku. Hlutabréfin eru skráð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. með auðkennið KVIKA. Með samningnum fellur úr gildi eldri samningur við Arion um viðskiptavakt með hluti félagsins.

Samkvæmt samningnum mun viðskiptavaki setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kviku í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland fyrir opnun markaðar. Tilboð viðskiptavaka skulu að lágmarki vera 1.250.000 hlutir. Tilboð skulu endurnýjuð eins og fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksfjöldi hluta sem viðskiptavaki er skuldbundinn til að kaupa eða selja á hverjum degi jafngildir ISK 70.000.000 að markaðsvirði.

Verðbil milli kaup- og sölutilboða sem sett eru fram í viðskiptavakt skal að hámarki nema 1,5%. Ef verðbreyting á hlutabréfum Kviku innan dags er umfram 10% er viðskiptavaka heimilt að auka verðbil milli kaup- og sölutilboða í 4,0% það sem eftir líður þess dags.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540-3200.