Reginn hf. - Niðurstöður hluthafafundar 9. september 2020



Hluthafafundur Regins hf. var haldinn klukkan 16:00, miðvikudaginn 9. september 2020  í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Rímu fundarsal, Austurbakka 2, 101 Reykjavík. Niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

1.    Heimild til handa stjórn til hækkunar hlutafjár:
Hluthafafundur Regins samþykkti breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins þess efnis að við greinina bætist heimild til handa stjórn félagsins til að auka hlutafé þess um allt að kr. 40.000.000 að nafnverði. Hluthafar skulu hafa forgangsrétt að öllum nýjum hlutum í hlutfalli við skráða hlutafjáreign sína. Heimildin skal falla niður þann 10. mars 2021.

  1. Önnur mál:

Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum.

Viðhengi



Attachments

Reginn hf. - Hluthafafundur - kynning - 09092020