REITIR: Stjórn nýtir heimild til hlutafjáraukningar


Á fundi sínum í dag ákvað stjórn Reita fasteignafélags hf. („Reita“) að nýta heimild þá sem hluthafafundur 22. september 2020 veitti henni til að hækka hlutafé félagsins um allt að 120.000.000 hluti. Fékk stjórn heimild til að ákvarða útboðsgengi hluta, áskriftar- og greiðslufresti og sölureglur útboðsins að öðru leyti.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í Reitum er 658.476.201 kr. og hyggst félagið gefa út 120.000.000 nýja hluti til viðbótar. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði. Viðskipti með hina nýju hluti verða í kerfum Nasdaq Iceland undir auðkenninu REITIR (ISIN: IS0000020352).

Hlutafjárhækkunin mun fara fram á grundvelli almenns hlutafjárútboðs til að safna áskriftum að hinum nýju hlutum þar sem hluthafar Reita njóta forgangs að hinum nýju hlutum, en að forgangsrétti frágengnum verða hinir nýju hlutir boðnir almennum fjárfestum í almennu útboði sem fram fer samhliða forgangsréttarútboðinu.

Útboð 20.-21. október 2020

Ákveðið hefur verið að útboðið fari fram dagana 20. og 21. október 2020. Stærð útboðsins nemur 120.000.000 hlutum eða sem nemur 18,22% af útistandandi hlutafé í félaginu. Heildarsöluandvirði útboðsins mun nema 5.160 milljónum króna, fáist áskrift að öllum þeim hlutum sem boðnir eru til sölu í útboðinu. Áætlaður kostnaður félagsins vegna hækkunar hlutafjárins er um 65 milljónir króna.

Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama útboðsgengi sem verður 43 kr. á hlut eða sem samsvarar 4% afslætti af dagslokaverði hlutabréfa Reita á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 28. september 2020. Forgangsréttarhafar að hinum nýju hlutum Reita eru þeir aðilar sem skráðir eru í hlutaskrá Reita hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð í lok dags þann 19. október 2020 og þeir aðilar sem fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín samkvæmt reglum útboðsins.

Seljandi mun fyrst úthluta hinum nýju hlutum til þeirra aðila sem njóta forgangsréttar. Verði enn nýjum hlutum í Reitum óúthlutað eftir úthlutun til forgangsréttarhafa, verður þeim úthlutað í almenna útboðinu og mun útgefandi einhliða ákveða hvernig úthlutun þessara hluta verður háttað.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar opinberlega í lok dags 21. október 2020. Eindagi kaupverðs í útboðinu er áætlaður þann 28. október 2020 og er gert ráð fyrir að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta og að viðskipti með þá hefjist eigi síðar en 16. nóvember 2020. 

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu og er einnig söluaðili í útboðinu ásamt Íslandsbanka hf.

Helstu skilmálar útboðsins:

  • Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr.
  • Nálgast má áskriftarform á vef Arctica Finance hf. (www.arctica.is/reitir-utbod) og vef Íslandsbanka hf. (www.islandsbanki.is/reitir-utbod) frá 20. október 2020 kl. 10:00 (GMT) til 21. október 2020 kl. 16:00 (GMT)
  • Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá Arctica Finance í síma 513 3300 milli kl. 10:00 og 16:00 dagana 20. október og 21. október 2020 og á tölvupóstfanginu reitir@arctica.is.

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um Reiti og skilmála útboðsins í lýsingu Reita sem áætlað er að birta þann 9. október 2020 og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti, bæði er varðar rekstur Reita og almenna áhættu sem er samfara því að fjárfesta í hlutabréfum.

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um Reiti, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem áætlað er að gefin verði út 9. október 2020 og birt verður á www.reitir.is/fjarfestar. Þar má nálgast lýsinguna lögum samkvæmt frá birtingu hennar.

Stjórn Reita fasteignafélags hf.