Kvika banki hf.: Tilkynning um hækkun hlutafjár


Þann 28. september sl. tilkynnti Kvika banki hf. („félagið“) að stjórn hefði nýtt heimild sína samkvæmt i) B. lið bráðabirgðaákvæðis I og ii) bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess um kr. 23.736.752 (þ.e. kr. 16.433.327 + kr. 7.303.425) að nafnvirði í þeim tilgangi að uppfylla kaupréttarsamninga og mæta nýtingu áskriftarréttinda. Athuga skal að í tilkynningunni frá 28. september var samtalan ranglega tilgreind 23.763.752, um misritun var að ræða. 

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og hlutafé félagsins stendur í kr. 2.077.319.178 að nafnvirði.

Óskað verður eftir því að hinir nýju hlutir verði gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.