Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár

Á hluthafafundi Reita fasteignafélags hf. þann 22. september sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 11.380.000 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist fyrr á árinu með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlun stjórnar sem aðalfundur hafði veitt heimild fyrir, og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 658.476.201 kr. en var fyrir lækkunina 669.856.201 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða einar@reitir.is.