Reginn hf.: Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta



Samkvæmt 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 skal útgefandi, er hann hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum, á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingarnar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Þann 2. október sl. tilkynnti Reginn  um aukningu hlutafjár í kjölfar heimildar sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins þann 9. september 2020. Hækkunin var skráð í Fyrirtækjaskrá þann 1. október 2020 og í kerfum Nasdaq Iceland þann 2. október 2020. Hækkunin tók gildi í kerfum Nasdaq Iceland hf. þann 5. október 2020.

Heildarfjöldi hluta er því nú 1.823.152.097 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu.


Nánari upplýsingar:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is - S: 512 8900 / 899 6262