Source: Reitir fasteignafélag hf.

REITIR: Útgáfa og afhending nýrra hluta og taka þeirra til viðskipta

Hlutafjárhækkun í Reitum fasteignafélagi hf. vegna útgáfu 120.000.000 nýrra hluta hefur verið skráð í Fyrirtækjaskrá eins og áður hefur verið tilkynnt um.

Hinir nýju hlutir verða útgefnir af Nasdaq verðbréfamiðstöð og afhentir þann 6. nóvember næstkomandi.

Gert er ráð fyrir að viðskipti með hina nýju hluti geti hafist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 og á einar@reitir.is