Þórsberg ehf. gerir samning um kaup á Grábrók ehf. af Brimi hf.


Forsvarsmenn Þórsbergs ehf. á Tálknafirði, sem gerir út bátinn Indriða Kristins BA 751 (2947) í krókaaflamarskerfinu, sem er með um 1.250 þorskígildistonn af krókaaflamarksheimildum, hafa gert samning við Brim hf. um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Grábrók ehf. Grábrók ehf. hefur gert út krókabátinn Steinunni HF 108 (2766), en honum fylgir um 850 tonna krókaflamark, að mestu í þorski.

Þórsberg ehf. greiðir fyrir með hlutafé í félaginu og mun Brim eiga tæp 41% hlutafjár í Þórsbergi eftir viðskiptin. Með kaupunum er Þórsberg að setja styrkari stoðir undir starfsemi sína.  

Við þessi viðskipti myndast ekki söluhagnaður eða sölutap hjá Brimi hf. Samningurinn er gerður með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila.

Frekari upplýsingar veita Guðjón Indriðason, framkvæmdastjóri Þórsbergs ehf. eða Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf.