Reitir birta uppgjör fyrstu þriggja fjórðunga ársins 2020 í lok dags í dag. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður rafrænn, þar munu Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið. Hægt verður að bera upp spurningar á fundinum með skriflegum hætti.
Fundurinn verður haldinn kl. 8:30, þriðjudaginn 17. nóvember. Skráning er nauðsynleg. Eftir skráningu fá þátttakendur staðfestingarpóst með nánari upplýsingum.
https://us02web.zoom.us/webinar/register/5716052657619/WN__5oxO7UCTFacQMjGvnmENQ