Kvika banki hf.: Stækkun útgáfu KVB 19 01 og KVB 20 01


Kvika banki hf. hélt í dag lokað útboð í skuldabréfaflokkunum KVB 19 01 og KVB 20 01. Samþykkt tilboð í útboðinu námu samtals 1.360 m.kr.

Í skuldabréfaflokknum KVB 19 01 verður viðbótarútgáfa 700 m.kr. en KVB 19 01 er fimm ára almennt skuldabréf með jöfnum mánaðarlegum afborgunum og vaxtagreiðslum. Skuldabréfið ber breytilega vexti, REIBOR 1 mánuður, að viðbættu 1,50% álagi og er selt á pari. Áður hefur bankinn gefið út 3.640 m.kr. í flokkinum og nemur heildarútgáfa eftir útboðið í dag 4.340 m.kr. en heildarútgáfuheimild er 5.000 m.kr.

Í skuldabréfaflokknum KVB 20 01 verður viðbótarútgáfa 660 m.kr. en KVB 20 01 er þriggja ára almennt skuldabréf með mánaðarlegum vaxtagreiðslum REIBOR 1 mánuður að viðbættu 0,85% vaxtaálagi og eru þau seld á 99,25. Skuldabréfunum fylgir innlausnarheimild sem fjárfestir getur nýtt hvenær sem er á líftíma bréfsins. Framkvæmd innlausnar fer fram með endurkaupum útgefanda á skuldabréfunum á næsta vaxtagjalddaga að átta mánuðum liðnum, frá því tilkynning um innlausn berst útgefanda. Áður hefur bankinn gefið út 1.500 m.kr. í flokknum og nemur heildarútgáfa eftir útboðið í dag 2.160 m.kr. en heildarútgáfuheimild er 5.000 m.kr.

Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland í næstu viku.